r/Iceland • • 2d ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

12 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland • • 3h ago

Flúði kúgunina í Íran en fær nú líflátshótanir á Ís­landi

Thumbnail
visir.is
42 Upvotes

Það virðist vera auðveldara að flytja frá Íran til Egilsstaða og læra íslensku en að sannfæra suma um að konur megi hafa skoðanir


r/Iceland • • 21h ago

I created an high-resolution Iceland Map

Post image
225 Upvotes

Hi folks, I'm an Italian guy from Rome who's obsessed with your astonishing country. I decided to create an high-resolution map of Iceland because I couldn’t find one online that met my needs, so I made my own and I decided to publish it. Hope you like it :) ❤️


r/Iceland • • 10h ago

Hvernig er að búa á landsbyggðinni?

22 Upvotes

Ég hef aldrei búið á landsbyggðinni, mun líklegast aldrei nokkurntímann flytja frá RKV nema kannski erlendis og hef í mesta lagi eytt nokkrum dögum í sumarbústað (max 2 klst frá höfuðborgarsvæðinu), og á enga ættingja utan Reykjavík og nágrenni (amma og afi búa á Selfossi en við skulum bara þykjast að sá staður er ekki til).

En ég vil endilega vita hvernig það er að búa á landsbyggðinni, er lífið betra eða verra heilt yfir? Eru einhverjir frá landsbyggðinni sem búa á höfuðborgarsvæðinu og stefna á að flytja heim eftir einhver ár í RKV? Ég er ekki að reyna vera leiðinlegur, en ég spyr því ég veit nákvæmlega ekkert um landsbyggðina, bara ekki neitt.

Ég er líka með aðrar (heimskar) spurningar:

hvað gerist þegar bærinn þinn verður óaðgengilegur þegar það snjóar of mikið?

er Akureyri partur af landsbyggðinni?

býr fólk á hálendinu á sumrin?

af hverju heitir Kópasker Kópasker? Er enginn vilji að breyta nafninu?


r/Iceland • • 33m ago

Einhver annar að lenda í veseni með auto translate?

2 Upvotes

r/Iceland • • 7h ago

Hvað er besta saumastofan á höfuðborgarsvæðinu?

4 Upvotes

Hef farið til hassans sem var dýr og skraddarans sem var ódýr. Hvaða saumastofum mælið þið með?


r/Iceland • • 23h ago

Nýr veruleiki blasir við í netöryggi

Thumbnail
ruv.is
13 Upvotes

Og á sama tíma er meirihlutinn í borginni að reyna að einkavæða Ljósleiðarann okkar í.


r/Iceland • • 1d ago

Á­herslan hafi verið á síður sem tengjast Palestínu - Vísir

Thumbnail
visir.is
20 Upvotes

r/Iceland • • 2h ago

1984 Hosting Hacked: Iceland Web Host Shuts Down All Services

Thumbnail
privacyaffairs.com
0 Upvotes

r/Iceland • • 1d ago

Gervigreindar búblan er sprungin.

7 Upvotes

Held að áhrifin hér verði ekki svo slæm, við sem þjóð höfum allavega ekki fjárfest mikið í þessu vona ég. Eða hvernig er staðan á því? Veit það einhver?


r/Iceland • • 1d ago

Ísraelskt flug­fé­lag boðar beint flug til Ís­lands

Thumbnail
visir.is
43 Upvotes

Af hverju hefur þetta ekki verið rætt hérna?

Hvað finnst fólki um þetta, á sama tíma og þessi þjóð fremur þjóðarmorð á fólki sem bjó á svæðinu löngu áður en Vesturlönd gáfu „greyið“ gyðingunum það? Fólki sem forsætisráðherrann kallar „Amalek“, sem er ekkert annað en ákall um algjöra þjóðernishreinsun.

Þetta er land sem hefur aldrei skilgreint eigin landamæri. Hvað er Ísrael þá í raun og veru? „Greater Israel project“ kannski?

Land þar sem forsætisráðherrann fjármagnaði beinlínis „hryðjuverkamennina“ í Hamas, með milligöngu Katar, í þágu eigin árásarstríðs. Sami forsætisráðherra og hefur sagt að Íran sé tvær vikur frá kjarnorkuvopni… á tveggja vikna fresti í rúm 30 ár. Þótt ALLT bendi til þess að þeir eigi sjálfir slatta af nukes í Dímona.

Þjóð sem virðist jafn heilaþvegin og Norður-Kórea um það hver óvinurinn sé. Kannski ekki skrítið, enda er ríkið ekki nema 78 ára gamalt (stofnað 1948).

Þjóð sem var stofnuð af mestmegnis trúleysingjum af gyðingaættum (Theodor Herzl og co.), sem voru svo svekktir yfir því að gyðingar ættu ekkert eigið land að þeir fóru í samstarf við fucking Hitler til að koma Ísrael á laggirnar (Haavara-samkomulagið. Irony at its finest!). Þótt raunverulegir gyðingar hafi verið bara voða kammó yfir því að búa í því ríki sem þeir voru (slatti af gyðingum enþá í dag búandi í Íran jafnvel!).

Og þjóð sem raunverulegir gyðingar segjast alls ekki styðja, því zíonismi er einfaldlega ekki gyðingdómur og hefur ekkert með trú að gera.

Svo hvað, eigum við bara að gúddera það að þetta þjóðarmorðsríki ætli að fljúga hingað? Hvað myndi Samúel segja?!

Ætti að gera undirskriftalista og afhenda hann Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra og/eða Þorgerði Katrínu utanríkisráðherra?

Eða eigum við bara að láta þetta slæda og fá hingað ógrynni af Rabbi Shmuley-týpum? Hann er reyndar ekki ísraelskur ríkisborgari, en ímyndið ykkur hvernig það fucking yrði ef hann væri það!


r/Iceland • • 1d ago

Two questions about rental deposit returns and repairs when moving out

2 Upvotes

Hey hey, I'm in the process of moving out from my unfurnished, rented apartment. I have paid rent through the end of the month, but returned the keys early. There was some minor damages to the walls that I filled and sanded while cleaning the apartment after it was empty: among other things, the landlord has said that he will take money out of my deposit for repainting the areas that I refilled. The refills were a perfect colour match for the paint on the walls, so this is an issue of matching the finish of the wall to be more shiny than the refilled areas are currently.

I'm wondering what the law is around this kind of situation, what I'm expected to cover, and what would be an excessive claim on my landlord's side. The landlord has said that he would take more money from the deposit if I ask him for a quote on the painting costs, as the quote preparation would apparently "take more money" which to me, as a foreigner, sounds a little odd.

The second question is more related to the costs of hiring a cleaner. When I left the apartment, I cleaned it to the standard that it was given to me in: some slight hints of daily use on the cook-top, etc. The landlord has stated that my cleaning was insufficient, and has offered to hire a cleaner for 20,000 ISK to correct the cleaning problems. Is this at all a reasonable amount of money for a secondary deep clean of a small studio's kitchen?

Thanks for any opinions or insights - it's been difficult to find documentation on renter's rights and the law in Iceland, and the deposit amount is not insignificant, so while I want to fulfil my obligations as a renter under the law, I am also invested in making sure that I get as much of my deposit back as I should, all things considered.


r/Iceland • • 1d ago

Biggest rabbit holes in Iceland? Conspiracies?

11 Upvotes

I really want to sink into something that maybe is “known” or even unknown. Something you believe in or heard about. Anything from whats going on now to something that goes way back.


r/Iceland • • 1d ago

Kennir 1984 um tveggja milljarða króna rafmyntasvik

Thumbnail
visir.is
15 Upvotes

r/Iceland • • 2d ago

Að stressast ekki of yfir heiminum

25 Upvotes

Ég veit ekki alveg hvað eg er að skrifa en mer finnst maður orðinn svo stöðugt stressaður og paranojaður yfir hvað er í gangi í heiminum.

Stríð, netárásir, svik, ofbeldi og listinn heldur áfram. Mer finnst eg komin a þann stað að ekkert róar mig og allt heldur fyrir mer vöku. Algoritminn hjálpar ekki þvi Instagram elskaði að senda mér myndbönd um svik (eg endurstillti hann)

Eg hef verið sannfærð oftar en einu sinni í stressi um að einhver hafi komist inní símann minn og veit nuna meira um öryggismál sima en flestir, allir póstar séu svikapóstar svo eg hef fengið martröð um að eg hafi sent svikareikning a vinnuna og tok góðan tíma í að sanna svo væri ekki, einhver hafi hakkað sig inní vinnutölvuna mína þegar eg óvart klikkaði a link fyrir yfir ári síðan og tölvan var skönnuð seinna, folk geti komist inn í bankareikninginn minn og áframhaldandi. Og hefði ekki átt að gera data clear a gamlan sima og gefa svo til endurvinnslu þvi var pottþétt ekki hreinsað. Og er kortið mitt öruggt? Og nota gervigreind til að fá ráð um þetta og það bara fer alltof mikill tími og orka í þetta. Og þreyta.

Svo les maður fréttirnar um Microsoft og í dag 1984 netárás og eg finn eg stressast öll upp aftur. Svo eru 3ja daga birgðir, tryggja eg eigi nóg af öllu ef fer af rafmagn og hiti, er ég nógu varin? Ætti ég að fjárfesta í meira öryggi? Læra á skotvopn?

Það er stöðugt talað um að folk eigi að sýna almenna skynsemi en afhverju eiga fyrirtæki ekki líka að tryggja öryggi?

Eg er i sambandi við góðan sálfræðing en mer finnst orðið svo yfirþyrmandi að vita hvar eru mörkin milli heilbrigðar skynsemi og að panikka ekki yfir öllu og að vera óundirbúin?

Því eins og stendur er eh sannfærð heimurinn muni hrynja en ef eg tek stund þar sem mér líður vel stressast eg svo upp. Eins og allt sé sekúndu frá því að hrynja.

Líður öðrum eins?


r/Iceland • • 2d ago

Að skipta um atvinnuvettfangur

7 Upvotes

Nú hef ég verið í minni starfstétt til fjölda ára og er orðinn 32 ára gamall.
Ég leggst til að fara í lögfræðina í haust.
Hafið þið náð að breyta um starf (career) og eru einhverjar leiðir eða stuðningur fyrir því á Íslandi eða verð ég að bíta í kúluna og taka námslán eða vinna fullt starf samhliða náminu ?


r/Iceland • • 2d ago

Fara fram á svör frá Einari og slökkviliðinu vegna hjólhýsabyggðarinnar eftir misvísandi yfirlýsingar

Thumbnail
dv.is
23 Upvotes

Þannig að Einar laug...


r/Iceland • • 2d ago

Man einhver eftir teiknimyndinni „Perla“ (Jem) á Stöð 2? / Anyone remember the Icelandic dub of Jem ("Perla") on Stöð 2?

Thumbnail
gallery
22 Upvotes

Hæ! Ég er að leita að gömlu íslensku talsetningunni á teiknimyndinni Jem and the Holograms, sem var sýnd á Stöð 2 undir nafninu Perla á árunum 1987–1991.

Man einhver eftir að hafa horft á þetta sem krakki — eða á einhver stafrænar upptökur af barnatímanum á Stöð 2 frá þessum tíma (t.d. gamlar VHS-upptökur sem búið er að færa yfir á stafrænt form)? Allar upplýsingar, minningar eða stafræn eintök eru vel þegin!

Uppfærsla: Mig minnir reyndar að þetta hafi verið með íslenskum texta frekar en talsett.

Hi everyone! I'm searching for the lost Icelandic dub of the 80s cartoon Jem and the Holograms, which aired on Stöð 2 under the title Perla between 1987 and 1991.

Does anyone remember watching this growing up, or happen to have digitized recordings of Stöð 2 children's programming (Barnatími) from that era? Any memories, voice actor leads, or digital copies would be huge!

Edit: I actually believe​ this had Icelandic subtitles rather than being dubbed. Sorry!


r/Iceland • • 1d ago

Pride and Prejudice

1 Upvotes

Hello!!

I collect copies of P&P from each country I have been to in the country’s native language. By the title of the post, I recently returned from Iceland where I went to every (and I mean every) bookshop in Reykjavik with no luck. I was wondering if anyone knew where I could find a copy of Hroki og hleypidómar (lol) or if by the off chance anyone had an extra copy they would be willing to sell. I have checked eBay, Etsy, Facebook etc. with no luck. Anyone have any tips of other shops thank you in advance !


r/Iceland • • 3d ago

Óeðlilegt að einn eða tveir flokkar geti selt mikilvæga innviði - RÚV.is

Thumbnail
ruv.is
135 Upvotes

"Við höfum séð að hingað til, þegar flokkar komast til valda, þá ákveði þeir að selja innviði eða fyrirtæki í eigu almennings. Það tekur bara stuttan tíma. Einn flokkur eða tveir flokkar bara ákveða að selja og okkur finnst það óeðlilegt. Þetta eru óafturkræfar ákvarðanir,“ segir Pétur.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að aukinn meirihluta þurfi til að selja mikilvæg innviðafyrirtæki borgarinnar, í kjölfar frétta um fyrirhugaða sölu á Ljósleiðaranum. Samkvæmt könnun sem var gerð fyrir flokkinn eru 57% andvíg sölunni.


r/Iceland • • 3d ago

Veit eitthver hvað er í gangi með skort á tóbaki út á landi. Ekkert Balishag eða vindlar á Suðurlandi allavega.

13 Upvotes

r/Iceland • • 3d ago

Eru barnaníðingar óskabörn Íslenska dómskerfisins?

Thumbnail
ruv.is
38 Upvotes

Enn og aftur leitast dómarar eftir að hlífa kynferðisbrotamanni við afleiðingum gjörða sinna.


r/Iceland • • 3d ago

Kossar starfs­manna Haga­skóla komnir til mann­auðs­skrif­stofu

Thumbnail
visir.is
40 Upvotes

MÁ EKKERT!?

Smá kossaflens orðið að máli hjá mannauðsstjóra.

Vantar ekki bara smá "Æji Gulli, kannski bara inni í lokaðri stofu næst"


r/Iceland • • 4d ago

Var afglæpavæðing fíkniefna bara alveg tekin af dagskrá eftir 2020?

29 Upvotes

Svandís lagði fram frumvarp um afglæpavæðingu neyslu skammta árið 2020 sem bara rétt svo féll, nú erum við að nálgast 2027 og ég veit ekki til þess að einn einasti stjórnmálaflokkur á landinu sé ennþá með þetta málefni í stefnunni sinni. Er þetta bara útrætt og dautt málefni?

Gerir fólk sér almennt grein fyrir því hvað skattgreiðendur eru að borga mikið fyrir að viðhalda refsistefnunni? Samkvæmt AI kostar hvert einasta fangelsis pláss landins skattgreiðendur 56734 krónur **á dag**, eða 20.7 milljónir á ári. Árið 2020 vorum við með 50 fanga í fangelsunum okkar sem voru að afplána fyrir fíkniefnabrot. AI segir líka að við eyðum 300-700 milljónum á ári í lögreglu rannsóknir og eftirlit, 100-250 milljónum á ári í tollgæslu, 50-150 milljónum á ári í rannsóknir á efnum, og að 100-300 milljónir af árlegum rekstrarkostnaði ákæruvalds/dómstóla sé tengdur fíkniefna brotum. Þetta gerir, hvað 2 milljarða á ári sem við dælum í þennan málaflokk (án þess að það komi í veg fyrir neyslu)? Kannski meira? Afhverju finnst okkur þetta bara vera ásættanlegur kostnaður á verkefni sem skilar ekki árangri?

Edit: mér var ekki gefin ástæða fyrir því að læsa þráðnum. Moddarnir hérna sökka. Ef ég náði ekki að svara gagnrýni frá þér áður en þræðinum var læst þá er þér velkomið að senda mér private skilaboð sem ég lofa að svara.