r/klakinn • • Oct 29 '24 Popcorn

Svikul tálsýn Áminning um reglur á r/klakinn

104 Upvotes

Í ljósi fjölda innleggja um stjórnmál og önnur leiðindamál er rétt að áminna landsmenn um reglurnar á r/klakinn.

Menn myndu halda að hið alvarlegasta reglubrot væri að brúka dönsku í athugasemdunum. En nei, annað sem er jafn alvarlegt; að vera með leiðindi, uppnefni, nöldur og argaþras um eitthvað djöfulsins kjaftæði.

Vegna komandi alþingiskosninga og ekki síður vegna umdeildra stjórnarhátta á r/iceland hefur ríkt undanlátssemi á klakanum fyrir alls konar vitleysu. En hingað og ekki lengra, þetta er orðið að einhverri vitleysu. Nú verða engin vetlingatök og reglubrjótum verður ekki sýnd nein miskun.

Menn hafa ekki verið bannaðir á klakanum nema í undantekningartilfellum. Þess í stað verða notendanöfn skráð í svarta bók ásamt ítarlegri lýsingu á þeirri andfélagslegu háttsemi sem hefur átt sér stað. Í árslok verður bókinni skilað til varðveislu á Þjóðskjalasafni svo sæmdarleysi og svívirða notandans verði skjalfest, notandanum til eilífðar háðungar.

Við erum betri en þetta. Við erum Íslendingar. Ykkur reglubrjóta og óþjóðalýð spyr ég:

Ísland, farsælda frón og hagsælda hrímhvíta móðir. Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best?


r/klakinn • • 1d ago

💩 SAURFÆRSLA 💩 Same-same but different

Post image
29 Upvotes

r/klakinn • • 1d ago

Íslenskt Krillion.io

10 Upvotes

Félagi sýndi mér íslenska útgáfu af leiknum krillion.io þar sem þú færist lárétt yfir sveitabæ, en ég hef ekki náð að finna hann. Veit einhver hvað þetta heitir?


r/klakinn • • 1d ago

Vönduð jarmgerð Hvurslags fjölkynngi er þetta??

Post image
94 Upvotes

r/klakinn • • 2d ago

Ruslpóstur ♻️ Ísland í afþreyingarefni

44 Upvotes

Hvað er uppáhaldsatriðið ykkar þar sem Ísland kemur fyrir í afþreyingarefni (sem Ísland, ekki bara tekið upp á Íslandi).

Er að horfa á 30 Rock þar sem Jenna tekur hlutverk í varúlfamynd sem er tekin upp á Íslandi að sumri til og það er aldrei myrkur svo þau geta aldrei tekið neitt upp. Elska það!


r/klakinn • • 2d ago

Ruslpóstur ♻️ Ástandið

Post image
129 Upvotes

r/klakinn • • 2d ago

Brýtur það persónuverndarlög að deila tölvupóstum sínum? Besservisserar velkomnir, svona einu sinni.

9 Upvotes

Mér var sagt að það bryti í bága við persónuverndarlög að lesa það sem mér hefur verið sent í tölvupósti fyrir þriðja aðila, alveg eins og ef ég tæki upp einkasamræður og deildi upptökunni. Það hljómar vafasamt fyrir mér, en er hér einhver lögfróður besservisser sem getur tekið af allan vafa?

Breytir það einhverju ef ég les upp fyrir einstakling, eða hóp fólks, eða í fjölmiðli? Ef ég leyfi öðrum að lesa tölvupóstsamskiptin en les þau ekki upp?

Myndi það breyta einhverju ef viðkomandi setti í fót tölvupóstsins eitt af þessum "þessi tölvupóstur er trúnaðarmál blablabla?"


r/klakinn • • 3d ago

Skjáauglýsinga Anthem Íslendinga

Thumbnail
youtube.com
51 Upvotes

"Útsala Útsala" - Misty, Suðurlandsbraut

"Konan hlær í nýjum bíl" - Bílasala Guðfinns

AGA gas, AGA gas..

Verði ykkur að góðu.


r/klakinn • • 4d ago

💩 SAURFÆRSLA 💩 Eini undirkaflinn

Post image
172 Upvotes

r/klakinn • • 5d ago

Eru ekki allir bara góðir, annars?

Post image
78 Upvotes

r/klakinn • • 5d ago

💩 SAURFÆRSLA 💩 Þjóðaríþróttir Íslendinga?

8 Upvotes

Hverjar eru þjóðaríþróttirnar fyrir utan glímu og handbolta?

Hvað með

Túttubyssuskotfimi

Þúfnagang

Barlóm

Ósamhæfða sundleikfimi

hjólað í spandex


r/klakinn • • 6d ago Bravo

🇮🇸 Íslandspóstur Eignaðist atgeir

113 Upvotes

Ég keypti mér atgeir til heimavarna, rétt eins og landnámsmennirnir ætluðust til.

Fjórir breyskir óþokkar brutu sér inn á heimili mitt. „Hvað í ósköpunum?“ hrópa ég, set upp loðhúfuna og gríp atgeirinn. Rek han í gegnum þann fyrsta svo á honum er gat á stærð við gorkúlu. Samstundis drapst hann.

Gríp bogann minn og skýt á þann næsta, hitti hann hvergi sökum þess að örvarnar er skakkar og hæfi þess í stað hund nágrannans.

Verð því að grípa til grjóthrúgunnar sem ég hef komið fyrir efst í stiganum. „Haldiði piltar við!“ hrópa ég og læt grjótið vaða. Tveir af þeim verða undir grjótskriðunni og þvílíkur var hávaðinn að þjófavarnir bifreiða fara í gang um allt hverfið.

Bregð saxi og geng á milli höfuðs og skrokks á síðasta ribbaldanum, sem skelfur nú á beinunum. Honum blæðir út áður en lögreglan kemur á vettvang, enda ekki hlaupið að því að sauma saman áverka eftir mýrarkeldu vígasax.

Rétt eins og landnámsmennirnir ætluðust til.


r/klakinn • • 6d ago

Hver er ykkar skoðun á þáttunum Fleiri pabbahelgar?

Thumbnail reddit.com
0 Upvotes

r/klakinn • • 7d ago

⚠️ ÓÖRUGGT, LÍFSINS VEGNA ⚠️ Þetta er bara ekki í lagi

Post image
27 Upvotes

r/klakinn • • 7d ago

Hverjir léku Glaumbæjargengið?

Post image
29 Upvotes

IMDB og Wiki og aðrar ,,heimildir” eru í algeru rugli. Siggi Sig er augljóslega einn af þeim, en hverjir léku hina tvo?


r/klakinn • • 8d ago

Að frenna sér á snjóbretti er rjómandi góð skemmtun

Thumbnail
youtu.be
18 Upvotes

r/klakinn • • 8d ago

Hvaða íslenska bók ætti að verða að kvikmynd?

Thumbnail reddit.com
0 Upvotes

r/klakinn • • 9d ago

Ómar Ragnarsson documentary.

Thumbnail reddit.com
0 Upvotes

Hvað með að við Íslendingar sýnum Ómari Ragnarsson þá virðingu sem hann á skilið og þjóðin kaupir myndina með plús í minningarsjóð í hans nafni í gegnum Kickstart eða Carolina fund...


r/klakinn • • 11d ago

Jólabjórsmakk

Post image
12 Upvotes

Daginn!
Síðan 2014 hef ég haldið úti síðunni https://itaste.beer/
Ég bjó til þessa síðu því við vinirnir vorum duglegir við að taka jólabjórsmakk. Það var alltaf á blöðum þar sem hver var í sínu horni að gefa einkunn og svo þurfti host-inn, dauðadrukkinn að stimpla þetta allt inní Excel í lok kvölds með tilheyrandi villum og veseni.

Mér datt í hug að það væri hægt að leysa þetta á aðeins betri hátt.
Kerfið er fáránlega einfalt í notkun, búa til room, velja bjóra, velja hvernig á að rate-a þá og byrja.
Stjórnandinn hendir dashboardi uppá sjónvarp og allir joina í símanum.
Einn bjór er opinn fyrir kosningu í einu og hver og einn gefur einkunn.
Um leið og hver og einn klárar sína einkunn fyrir hvern bjór poppar það uppá sjónvarpið.

Ég er að ég held eini íslendingurinn sem er með aðgang að lokuðum API Untapped og er þar af leiðandi með gott sem alla bjóra heims í kerfinu.

Kerfið er frítt, endilega prófiði.


r/klakinn • • 11d ago

🇮🇸 Íslandspóstur Maður reynir að bæta orðaforðann sinn en ekki án ✨mótlætis✨

Post image
116 Upvotes

r/klakinn • • 11d ago

Copy pasta fyrir ái pósta, má ég heyra amen!

17 Upvotes

Við fáum velgju þegar altman kemur og knýr á. Þegar freistarinn kemur með röddu sína, þá liggur við uppköstum. Við verðum að hata AI. Má ég heyra amen. Eina leiðin, eina leiðin.

Þið vitið hvað okkar fyrstu foreldrar gerðu, hvað konan gerði. Hún fór og spjallaði við altman. “Eigum við ekki að fá okkur kaffi, ræða málin” og hvað varð úr því? AI!

Og við erum enn þá marin og meidd eftir þá ferlegu uppákomu. Við eigum ekki að bjóða AI í kaffi! Við eigum að segja burt með þig, mér býður við þér þú ert viðbjóður ég vil þig ekki nálægt húsi mínu. Má ég heyra amen. Við eigum að hafa viðurstyggð á AI, við eigum að hata það.


r/klakinn • • 11d ago

Deildu.net

0 Upvotes

Er síðan hætt? :'(


r/klakinn • • 12d ago

Vaknaði og langaði allt í einu ógeðslega mikið í íslenskt bland í poka.

19 Upvotes

Ég hef búið erlendis lengi og ekki komist heim í nokkur ár.

Það böggar mig ekkert mikið því ég hef hitt fjölskyldumeðlimi annarstaðar.

En ég veit ekki afhverju. Kannski er það út af heilsuvandamálum og tilheyrandi þunglyndi sem er að gera mig nostalgic/heimþrá.

En þegar ég vaknaði í morgun þá langaði mig ógeðslega mikið í íslenskt bland í poka.

Það var ekki það að ég saknaði ákveðis nammi. Fyrir utan það að mig langar alltaf í lakkrís.

Nei mér langaði í bland í poka. Mig langaði að fara í búð og velja fullt af mismunandi nammi.


r/klakinn • • 13d ago

💩 SAURFÆRSLA 💩 Sykurlaust Ópal

26 Upvotes

Ég held að við sem samfélag þurfum að horfast í augu við það er það er óeðlilegt að sykurlaust ópal sé í boði í matvöruverslunum og meira að segja ekki aldurs takmarkað.

Færa þarf sölu þess alfarið í apótek, hafa lyfseðilsskylt og einungis leyfa að skrifa uppá það fyrir hægðatregðu sem ógnar lífi sjúklings og til þess að valda þungunarrofi í hestum.

Er best að gera undirskriftalista, mótmæla fyrir utan lyfjastofnun eða bara kaupa kíló af þessu lífefnavopni og setja í nammiskál á alþingi ?